ÍslenskaLatínaLýsing
Fjallaþinur Abies lasiocarpa Venjulega 6-18 m á hæð, með stuttar greinar, nærri súlulaga. Allt tréð ilmandi. Frekar harðgerður.
Drekabroddur Berberis amurensis Skrautrunni, 100-150 cm, gulir blómklasar í maí-júní, gulir og rauðir haustlitir, harðgerður.
Purpurabroddur Berberis ottawensis "Superba" Skrautrunni, 100-150 cm, gul blóm í júní, blöð dökkrauð, miðlungsharðgerður.
Sólbroddur Berberis thunbergii "Laugardalur" Skrautrunni 100 - 150 cm, blóm gul í maí - júní, gulir og rauðir haustlitir, allharðherður.
Fjalldrapi Betula nana Lágvaxinn runni, góður í steinhæðir, harðgerður.
Birki, Ilmbjörk Betula pubescens Garðtré, þarf sól, mjög gott í limgerði.
Hengibjörk Betula pendula Fallegt garðtré, getur orðið mjög hátt, meðalharðgert
Skriðmispill Cotoneaster adpressus Jarðlægur smávaxinn runni, góður í steinhæðir og upp við vegg, skuggþolinn, meðalharðgerður.
Grámispill Cotonaster integerrimus Hálfuppréttur runni, 50-100 cm, lítil bleik blóm, rauð ber, gulir og rauðir haustlitir, harðgerður.
Gljámispill Cotonaster lucidus Runni, 100-150 cm, glansandi dökkgræn blöð og mjög fallegir haustlitir, góður í limgerði eða stakstæður, harðgerður.
Flatsópur Cytisus decumbens Jarðlægur runni, gul blóm, frekar viðkvæmur, þarf vetrarskýli á snjóléttum stöðum.
Geislasópur Cytisus purgans Sígrænn skrautrunni, gul ilmandi blóm í júní-júlí, þarf þurran og sólríkan stað, harðgerður.
Töfratré Daphne mezereum Hægvaxta planta sem blómstrar fyrir laufgun á vorin. Ber eitruð aldin.
Silfurblað Eleaganus commutata Hægvaxta uppréttur runni, silfurlit blöð og árssprotar, þarf frekar frjóan jarðveg, miðlungsharðgerður.
Einir íslenskur Juniperus communis Lágvaxinn sígrænn nær jarðlægur runni, meðalharðgerður.
Himalajaeinir Juniperus squmata Hálfuppréttur runni, útsveigðar greinar, sígrænt bláleitt barr, harðgerður.
Garðagullregn Laburnum x watereri "Vossii" Gulir blómklasar, lengri en á fjallagullregni, þroskar ekki aldin, meðalharðgert.
Fjallagullregn Laburnum alpinum Gulir blómklasar, þroskar aldin og er í harðgerðari kantinum.
Rússalerki Larix sukaczewii Stórt fallegt barrtré, fellir nálar, gulir haustlitir, harðgert.
Blátoppur Lonicera caerulea Runni, 100-150 sm, ljósgræn blöð, góður í limgerði, skuggþolinn og harðgerður.
Bergtoppur Lonicera caerulea var. altaica Runni, 100-150 sm, fagurgræn blöð, svipar til Blátopps en er vindþolnari, góður í limgerði, skuggþolinn og harðgerður.
Gultoppur Lonicera deflexicalyx Stórvaxinn skrautrunni, 150-400 cm, gul blóm á vorin, mjög harðgerður og vindþolinn.
Klukkutoppur Lonicera hispida Skrautrunni 100-150 cm, vöxtur uppréttur græn hrjúf blöð, gulhvít falleg blóm, harðgerður.
Glótoppur Lonicera involucrata "Kera" Runni, 100-150 cm, uppréttur með öran vöxt, dökkgul blóm umlukin dökkrauðum háblöðum, svört ber, miðlungsharðgerður.
Skógartoppur Lonicera periclymenum Klifurplanta, gul ilmandi blóm í júlí - sept. miðlungsharðgerður
Rauðtoppur Lonicera tatarica Skrautrunni, 100-150 cm, bleik blóm, þrífst sæmilega norðanlands.
Dúntoppur Lonicera xylosteum Stórgerður runni, gulhvít blóm, skuggþolinn, harðgerður.
Snækórona Philadelphus cironarius "Halldóra" Fallegur smágerður runni, hvít blóm í júlí með sterkum appelsínuilmi, þarf skjól og frjóan jarðveg, skuggþolinn, miðlungsharðgerður.
Rauðgreni Picea abies Uppmjótt keilulaga tré, vex best í frjóum, deigum farðvegi á skýldum stöðum.
Blágreni Picea engelmannii Fallegt barrtré, vex frekar hægt, hentugt garðtré í litla sem stóra garða. Harðgert.
Hvítgreni Picea glauca Þéttvaxið, keilulaga. Fremur seinvaxið, er skuggþolið og kemst af í rýrum jarðvegi.
Sitkabastarður Picea x lutzii Sitkabastarður hefur ýmsa bestu eiginleika foreldrana, hann gerir ekki miklar kröfur til jarðvegs, en er þó mun hraðvaxnari en aðrar grenitegundir við sömu skilyrði.
Broddfura Pinus aristata Hægvaxta, snoturt barrtré, hentugt í garða, þrífst best í þurrum jarðvegi.
Lindifura Pinus cembra Krónan keilulaga fyrst, síðar oft óregluleg með fleiri en einum toppi
Stafafura Pinus contorta Umfangsmikið beinvaxið fagurgrænt barrtré. Harðgert.
Sveigfura Pinus flexilis Bolstutt og þrekið tré með keilulaga krónu, seinvaxið og verður mörg hundruð ára í heimkynnum sínum.
Fjallafura Pinus mugo var. mughus Margstofna, hægvaxta, fagurgrænt barrtré, um 2 m.
Dvergfura Pinus mugo var. pumilio Frekar smávaxið hægvaxta greinótt barrtré, ca. 1-2 m, harðgert.
Bergfura Pinus uncinata Beinvaxið greinótt eða runnkennt barrtré, harðgert.
Runnafura Pinus mugo Jarðlægur eða uppréttur runni Vinsæl garðplanta í Evrópu
Alaskaösp Populus trichocarpa Hávaxið beinstofna tré, blaðstórt, ekki mjög vindþolið, víðast harðgert.
Runnamura Potentilla fruticosa Skrautrunni, 100-150 cm, fínlegur vöxtur, gul blóm mestallt sumarið, afar blómsæll og harðgerður.
Runnamura lág Potentilla fruticosa "Micranda" Skrautrunni 60 - 100 cm, þéttvaxinn, sítrónugul blóm frá júlí, blómsæll, góður í steinhæðir eða lág limgerði, harðgerður.
Runnamura hvít Potentilla fruticosa "Sandwedana" Skrautrunni 60 - 100 cm, hvít blóm frá ágúst, miðlungsharðgerður
Runnamura orange Potentilla fruticosa "Sunset" Skrautrunni 60 - 100 cm, appelsínugul blóm, miðlungsharðgerð.
Runnamura, jarðlæg Potentilla fruticosa var.arbuscula Skriðul, ekki mjög harðgerð.
Heggur Prunus padus Margstofna tré eða stór runni, hvít blóm, skuggþolinn, allharðgerður.
Blóðheggur Prunus padus "Colorata" Stór runni, rauðleit blöð og stórir blómklasar, þarf súran jarðveg, gott skjól og vetrarskýli.
Fjallarifs Ribes alpinum Fíngerður, hægvaxta runni, 100-150 cm, góður í limgerði, skuggþolinn, harðgerður.
Gullrifs Ribes aureum Þyrnalaus runni, 100-200 cm, blómin gullgul og ilmandi í fáblóma klösum, berin ljúffeng rauð, gul eða svört. Þrífst vel hérlendis.
Sólber Ribes nigrum Berjarunni, berin svört og C - vítamínrík, nokkuð harðgerður.
Rifs Ribes spicata "Röd Hollandsk" Berjarunni, rauð ber, hægt að nota í limgerði, afar harðgerður um land allt.
Stikilsber Ribes uva-crispa "Hinimaki" Góður berjarunni, græn eða rauðleit ber, gefur góða uppskeru í góðu skjóli og sól, frekar harðgerður.
Heiðarrós Rosa acicularis Allt að 1 m á hæð. blómin stök einföld,ilmandi, dökkrauð ,4-5 cm í þvermál
Dornrós Rosa "dornröschen" Eðalrós, sterkbleik, fyllt blóm, blómviljug, þarf vetrarskýli, frekar harðgerð.
Þokkarós Rosa "George Will" Runnarós bleik hálffyllt illmandi blóm, 100 cm, harðgerð.
Pólstjarnan Rosa "Polstjarnan" Runnarós, klifurrós allt að 3 m að hæð og breidd við húsvegg, hvít hálffyllt blóm í stórum skúfum, harðgerð.
Chinatown Rosa Chinatown Gul fyllt blóm.
Kanelrós Rosa cinnamonea Árssprotarnir sjaldan með þyrnum. Krónublöðin dökkrauð eða rósrauð. Aldin skarlatsrautt. Hefur lítilsháttar kryddilm.
Flammentanz Rosa 'Flammentanz' Eðalrós, klifurrós, rauð fyllt blóm, vetrarskýli.
Gullrós Rosa foetida "Persian Yellow" Runnarós, 100-200 cm, gul fyllt blóm í ágúst, víða harðgerð
Rauðblaðarós Rosa glauca Runnarós með fallegt rauðleitt lauf, lítil bleik blóm, viðkvæm fyrir ryðsveppi, annars mjög vindþolin og harðgerð.
Meyjarós Rosa moyesii Runnarós, 2-3 m, rauð, einföld blóm í júlí, rauð aldin á haustin, blómviljug og mjög harðgerð.
Nina Weibull Rosa 'Nina Weibull' Fyllt rauð skúfrós, vetrarskýli
Peer Gynt Rosa 'Peer Gynt' Gul, stórblómstrandi eðalrós, vetrarskýli.
Fjallarós Rosa pendulina Runnarós, 100-150 cm, bleik einföld blóm í júlí-ágúst, má nota í limgerði, vindþolin og harðgerð.
Finnlands hvíta rós Rosa pimpinellifolia Runnarós, 100-150 cm, hvít einföld blóm, svört aldin á haustin.
Þyrnirós, Lóurós Rosa pimpinellifolia "Lovísa" Runnarós 50 - 100 cm, hvít einföld blóm, má nota í lagvaxin limgerði, vindþolin og harðgerð.
Hansarós Rosa rugosa "Hansa" Runnarós, 100-150 cd, stór rauðbleik, ilmandi, fyllt blóm, má nota í limgerði, vind og saltþolin, afar harðgerð.
Hammenbergrós Rosa rugosa "Moje Hammerberg" Runnarós, 80-100 cm, farðbleik, hálffyllt blóm, vind og saltþolin, miðlungsharðgerð.
Salling Rosa 'Sallinge' Dökkrauð skúfrós, vetrarskýli.
Super star Rosa 'Super Star' Appelsínugul, stórblómstrandi eðalrós, vetrarskýli.
Hjónarós Rosa sweginzowii Runnarós, 2-3 m, oft hærri ef bundið er við húsvegg, bleik einföld blóm í júlí, rauðgul aldin á haustin, mjög harðgerð.
     
Virgo Rosa 'Virgo' Hreinhvít, stórblómstrandi eðalrós, vetrarskýli.
Laxaber Rubus spectabilis Stórgerður runni, 150-200 cm, rauðleit blóm, skríður örlítið, hvít blóm, hentugur í ker, harðgerður.
Brekkuvíðir Salix "brekkuvíðir" Runni, góður í limgerði, vind og saltþolinn, afar harðgerður um land allt.
Tröllavíðir Salix alaxenis Grófur runni eða tré, mjög hraðvaxta, notaðru í skjólbelti og stórgerð limgerði eða sem stakstætt tré, víðast saltþolinn og afar harðgerður.
Viðja Salix borealis Stór runni eða tré, notist í limgerði eða stakstæður, harðgerður.
Grávíðir Salix callicarpaea, "Þórhallur" Uppréttur runni, lítil silfurgrá blöð, harðgerður.
Grænlenskur grávíðir Salix glauca ssp, groenlandica Alveg jarðlægur runni, grá blöð, góður í steinhæðir, harðgerður.
Orravíðir Salix glaucosericea Uppréttur runni, 100-150 cm, með ílöng gráloðin blöð. Harðgerður, góður í limgerði og sem stakstæður runni.
Loðvíðir ísl Salix lanata "Syðra gil" Lágvaxinn runni, gráloðin blöð, karlplöntur með sérstaklega fallega gula rekla á vorin, harðgerður.
Myrtuvíðir Salix myrsinites Smágerður runni, ca 100 cm, þéttgreinóttur, dökkgræn, gljáandi blöð, sem haldast brún og visin á runnanum yfir veturinn, harðgerður.
Gljávíðir Salix pentandra Runni, ljósgræn glansandi blöð, góður í limgerði en þolir illa rakan jarðveg, og þolir ekki að standa undir ljósastaurum, er að mestu laus við lús, miðlungsharðgerður.
Netvíðir Salix reticulata Smávaxinn jarðlægur runni, mjög fallegur í steinhæðir, miðlungsharðgerður.
Alaskayllir Smbucus racemosa ssp. arborecens Stórvaxinn runni, 2-4 m, mjög hraðvaxta, ekki mjög vindþolinn
Reyniblaðka Sorbaria sorbifolia Skrautrunni, ca 100 cm, hvítir blómskúfar síðsumars, laufgast snemma, gulir haustlitir, skuggþolinn, skríður dálítið, frekar viðkvæmur.
Ilmreynir Sorbus aucuparia Hávaxið fallegt tré, hvítir blómsveipir í júní, rauð ber á haustin, gulir
Koparreynir Sorbus koehneana Fíngert lítið runnkennt tré, hvít blóm og hvít ber, gulir og rauðir haustlitit, miðlungsharðgert.
Úlfareynir Sorbus x hostii Lítið tré 2 - 3 m, oftast margstofna, bleik blóm í júní. Rauð ber á haustin sem eru góð í sultu, gulir haustlitir, harðgert.
Heiðakvistur Spiraea betulifolia Skrautrunni, 60-100 cm, þéttvaxinn runni, hvít blóm í júlí, fallegir haustlitir, harðgerður.
Bjarkeyjarkvistur Spiraea chamaedryfolia Skrautrunni 100-150 cm, þéttgreinóttur, blóm í júlí-ágúst, skríður dálítið, nokkuð skuggþolinn, harðgerður.
Grákvistur Spiraea x cinerea 1-2 metra hár runni með hvít blóm, ekki algengur hérlendis.
Bogakvistur Spiraea cveitchii Skrautrunni, 150-200 sm, bogsveigðar greinar, blómgast í júlí-september, miðlungsharðgerður.
Dreyrakvistur Spiraea densiflora Lítill skrautrunni 40-60 cm, uppréttur vöxtur, dökkbleik blóm í júlí-ágúst, harðgerður.
Dögglingskvistur Spiraea douglasii Skrautrunni, ca. 100 cm, bleik blóm í klösum í ágúst-sept., uppréttur vöxtur, lítið eitt skuggþolinn, skriðull, harðgerður.
Stórkvistur Spiraea henryi Skrautrunni 200 - 300 cm, stórir hvítir blómsveipir í júlí, fallega útsveigðar greinar, harðgerður.
Lágkvistur Spiraea humilis Lítill skrautrunni 40-60 cm, stórir bleikir blómsveipir í ágúst - september, harðgerður.
Japanskvistur Spiraea japonica Lítill skrautrunni, ca 50 cm, þéttgreinóttur, breiðir bleikrauðir blómsveipir í ágúst-sept, miðlungs harðgerður.
Dvergkvistur Spiraea japonica "Alpina" einnig "Little Princess" Lítill skrautrunni, ca 30 cm, bleikir blómsveipir í ágúst, góður í steinhæðir, miðlungsharðgerður.
Garðakvistur Spiraea media Skrautrunni, ca. 100 cm, hvít blóm í grönnum hálfsveipum eða klösum, gulir haustlitir, harðgerður.
Sunnukvistur Spiraea nipponica Skrautrunni ca 150 cm, bogsveigðar greinar, stórir hvíti blómsveipirj í júlí - ágúst, harðgerður.
Birkikvistur Spiraea sp. Skrautrunni, 80-100 sm, þéttgreinóttur, harðgerður.
Síberíukvistur Spiraea trilobata "Siberica" Skrautrunni 60 -80 cm, hvít blóm í júlí, blómsæll, góður í steinhæðir, harðgerður.
Perlukvistur Spiraea x margaritae Lágvaxinn skrautrunni, ca 75 cm, ljósbleikir blómsveipir í ágúst, miðlungsharðgerður.
Kínakvistur Spirea gemmata Skrautrunni 150-200 cm, með löngum, litlum, hvítum blómsveipum
Loðkvistur Spirea mollifolia Skrautrunni, ca 100 cm, útsveigðar greinar og gráloðin blöð, hvít blóm, hentugur í ker, harðgerður.
Víðikvistur Spiraea salicifolia 1-2 metrar á hæð, ljósrauð blóm í skúfum. þarf að klippa árlega.
Snjóber Symphoricarpus albus Skrautrunni 100 - 150 cm, bleik lítil blóm og hvít ber, skuggþolinn, harðgerður.
Gljásírena Syringa josikaea Stórvaxinn runni, 200-400 cm, uppréttar greinar, ljósfjólubláir blómklasar í júní-júlí, saltþolinn, harðgerður.
Bogsýrena Syringa reflexa Skrautrunni 200-400 cm, útsveigðar greinar, ljósbleikir blómklasar í júní-júlí, saltþolinn, harðgerður.
Elínorsírena Syringa x prestoniae "Elinor" Skrautrunni, 200-300 cm, frekar hægvaxta, bleikir blómklasar, mjög blómsæll, harðgerður.
Kínasýrena Syringa yunnanensis Skrautrunni, 200-300 cm, frekar hægvaxta, ljósfjólubláir blómklasar, harðgerður.